Auglýsing

Atburðarteljari

Klukkan

Veðrið í Álaborg

The WeatherPixie

Veðrið í Reykjavík

The WeatherPixie

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Að hætta eða ekki hætta???

09. maí 2009 klukkan 00:01
Það er spurningin!!!

Í tilefni þess að það eru meira en 3 mánuðir frá síðasta bloggi, þá ætla ég að reyna að bæta aðeins úr.  Verð að viðurkenna að Facebook er að taka aðeins meiri tíma, en hún ætti að gera, og hafa einhvernveginn allar fréttir farið þar í gegn.  Var líka alveg pottþétt á vþí að það væru allir hættir að lesa blogg, en áskoranir síðustu vikna segja mér annað... þannig að OK, ég læt undan hópþrýstingi og blogga því aftur!!!

Við erum semsagt búin að vera á fullu í okkar daglegu störfum, skóla og aftur skóla.  Þessi önn er víst sú erfiðasta í okkar námi, þannig að við höfum haft fullt í fangi við að reyna að halda í við þetta allt saman.  Það hefur gengið alve ágætlega (held ég), allavegana höfum við fengið fínar umsagnir um verkefnin okkar.  Erum í lokaverkefninu okkar núna, og vonum bara að þessar góðu umsagnir haldi áfram :-)

Við erum búin að bóka far til Íslands og erum víð væntanleg þangað 16. júní!!!  Ég er eins og smákrakki ég hlakka svo til að fara niður í bæ á 17. júní og leyfa Ísabellu að fara í skrúðgöngu í fyrsta skipti.  Hún er alltaf að tala um að hún ætli að vera með íslenskan fána og auðvitað leyfum við barninu það.  Hún reyndar kallar allt íslenska fána, og þegar fánarnir á McDonalds eru orðnir íslenski fáninn, þá held ég að það sé kominn tími til að endurskoða þetta aðeins.
Við eigum svo bókað far aftur til DK, 14. júlí, þannig að þetta verður gott stopp að þessu sinni.  
Frumburðurinn ætlar svo að láta ferma sig 28. júní og erum við öll að rifna úr tilhlökkun.  Held að það eigi eftir að verða góður dagur :-)  Ef ykkur langar til að baka fyrir veisluna, þá er ykkur það meira en velkomið, haha!!

Við erum alltaf jafn sátt hérna í sveitinni, það er voðalega gott að búa hérna.  Veðrið hefur verið rosalega gott og við öll að verða pínu útitekin.
Nathalie bauð okkur á listasýningu í bekknum sínum sl. fimmtudag.  Þar var til sýnis partur af þeim listaverkum sem krakkarnir hafa verið að vinna að, í vetur.  ekkert smávegis flott hjá þeim öllum og það besta var að við fengum að fara heim með fullt af listaverkum ;-)  Ekki amalegt að fara á þannig sýningu.

Andrea er að fara að halda hátíðlegan Blå mandag (bláan mánudag) nk. mánudag.  Það verður farið í morgunmat til einnar í bekknum, svo á að fara niður í bæ og skoða í búðir, út að borða, í tívolí og svo á diskótek um kvöldið.  Þessi dagur er alltaf haldinn daginn eftir fermingu, en Andrea fær að vera með, þó að hún sé ekki búin að láta ferma sig.  Það eru heilmiklar pælingar með þennan dag, skipulagning og aðalmálið er hverjir ætla að labba saman þennan dag og í hvaða fötum krakkarnir ætla að vera.   Þetta verður vonandi hörkufjör hjá henni!!

Ísabella er alltaf jafn sátt við lífið og tilveruna.  Er reyndar orðin pínu leið á vöggustofunni, enda ein af þeim elstu þar og því fáir til að leika við.  Við erum búin að fara og skoða leikskólana hérna í bænum, sem hún fer á í súmar (einhvern þeirra) og leist mjög vel á.  Held að það verði svakalega gaman fyrir hana að byrja á leikskóla og hafa krakka á sínum aldri til að leika við.  Hún vill helst alltaf vera úti og var alsæl þegar hún fékk sandkassa í garðinn hjá okkur.

Við hjónin erum búin að vera á stanslausu tjútti síðustu helgar.  Það eru endalaus afmæli og innflutnings-eða útflutningspartý, sem við erum boðin í og alltaf jafn mikið stuð!!!  Bara gaman að því :-)

Annars átti þetta bara að vera stutt núna, ég reyni að láta ekki líða svona langt á milli blogga aftur *roðn*

Knús á ykkur öll...
Guðný í sólarskapi!!
Guðný Matthíasdóttir
3 athugasemdir

Bloggað frá nýjum heimkynnum

04. febrúar 2009 klukkan 21:43

Vestbjerg calling... eða eitthvað þannig.  Við erum semsagt flutt á nýjan stað og er það vel.  Flutningarnir gengu rosalega vel, enda vorum við með fullt af góðu fólki til að hjálpa okkur.  Veit bara hreinlega ekki hvernig þetta væri, ef við hefðum ekki vini okkar hérna, sem maður getur alltaf treyst á :-)  Takk öllsömul, það verður haldið gott innflutningspartý innan skamms (ok, kannski ekki innan skamms, en vonandi innan árs, haha)
Við semsagt fengum lyklana á fimmtudegi og notuðum föstudag og laugardag í að flytja dótið okkar.  Ætluðum að vera rosalega dugleg á fimmtudagskvöldinu, en þá varð bara óvart partý heima hjá okkur.
Já, það var algjörlega óvart.  Guðný Björk ákvað að kíkja á okkur og fagna próflokum hjá sér.  þar sem við vorum í fríi, var það bara gaman.  Svo bara fylltist húsið af fólki :-)  Við sátum og fengum okkur nokkra öl og auðvitað Frisk Aalborg... hinn ótrúlega góða drykk sem Guðný Björk bauð uppá.  Mér fannst það bragðast eins og SítrónuAjax, en Bylgja kom algjörlega með það... þetta var á bragðið eins og Aceton!!!!

Jæja, allavegana þá náðum við að sofa fyrstu nóttina aðfaranótt laugardagsins 24. janúar og OMG, hvað okkur líður vel hérna.  Þetta er bara algjör draumur í dós.
Á laugardeginum komu svo Mamma og Óli bróðir hingað til okkar.  Það var því miður ekki mikill tími til að gera nokkurn skapaðan hlut á meðan þau voru hérna, annað en að reyna að koma sér fyrir á nýjum stað og ganga frá á Skallerupvej.  En Óli er búinn að tala um að kíkja kannski í sumar og við vonum bara að það takist hjá honum. 
Mikið er nú alltaf ljúft að hafa fjölskylduna (þó ekki sé nema hluta hennar) í kringum sig.  Mamma fór eins og hvítur stormsveipur um Skallerupvejen, líktist helst svona Ajaxauglýsingu, haha!  Vá, hvað þetta var vel gert hjá henni, enda höfðu karlarnir sem skoðuðu íbúðina þegar við skiluðum orð á því hvað húsið væri vel þrifið.  Já, danirnir ekki vanir íslenskum þrifum greinilega.
Takk fyrir alla hjálpina, elsku mamma og Óli.  Við söknum ykkar rosalega mikið og hlökkum mikið til að fá ykkur næst í heimsókn.  Ísabella var lengi að sætta sig við það að amma væri farin, labbaði um allt hús og leitaði að henni.  Hún vissi alveg að amma og Óli hefðu farið í flugvélina og að þau hefðu farið til íslands, en virtist ekki alveg sætta sig við það að þau kæmu ekki bara aftur.  Algjör dúlla, sko.
Annars þá er pabbi staddur í Danaveldi þessa dagana.  Hann er á einhverju námskeiði eða eitthvað þannig, á Sjálandi.  Svo er förinni heitið norður á bóginn í enda vikunnar, og eigum við von á honum hingað á föstudaginn.  Það verður voða gott að hafa pabba hérna um næstu helgi, ég er ekki lítið heppin að fá að hafa fjölskylduna mína svona mikið hjá mér.  Treysti bara á að Kristín og Biggi komi líka, svona með hækkandi sól ;-)

Andrea er byrjuð í nýja skólanum og líkar bara þrælvel.  Sagði að skólinn væri aðeins erfiðari hérna, en þar sem hún var síðast og er alveg að fíla það vel.  Henni finnst bara gott að fá að reyna aðeins á heilann :-)  Hún er komin með fullt af vinkonum... ja allvegana góðum kunningjum og líkar vel að vera flutt.
Nathalie fer í og úr sínum skóla í leigubíl og er sótt 15 mínútum seinna á morgnana (kannski ekki mikið, en 15 mínútur að morgni til, eru gulls ígildi á þessu heimili) og kemur klukkutíma fyrr heim.  Það er sko ótrúlegur munur fyrir hana, að geta verið búin að læra og allt´, áður en klukkan er fimm (sem var venjulegur tími fyrir hana að koma heim á).

Fórum í 2 barnaafmæli sl. sunnudag.  Gunni (sonur Eydísar og Gumma) varð 6 ára og Ásta María (dóttir Valborgar og Stulla) varð 12 ára.  Alltaf ljúft að komast í kökupartý, því verður sko ekki neitað, og ekki vantaði kræsingarnar á þessum stöðum.  Ég fæ bara vatn í munnin við tilhugsunuina.

Bylgja og Nína kíktu svo hingað á mánudagskvöldið.  Við borðuðum saman og sátum svo og kjöftuðum til 1.  Þær ætluðu sko bara að fá smá tónlist hjá okkur... en það teygðist aðeins úr þessu hjá okkur, eins og vill gerast þegar maður er kominn vel af stað, haha!

Skólinn hjá okkur byrjaði aftur, eftir eitthvað það svakalegasta jólafrí, sem sögur fara af: 45 daga frí!!!  Að vísu þurftum við að mæta í eitt próf í millitíðinni, en það var ekkert til að tala um.
Skólinn byrjar samt ekkert með neinum látum, áttum að byrja á mánudaginn, en þá var frí.  Þriðjudagurinn var skóli, frí í dag, skóli á morgun og frí á föstudaginn!!! Þetta er ekki hægt. 
Við vorum með nýjan kennara í gær, rosalega skemmtilegur og önnin leggst bara vel í mig.
Fengum að vita það að það verður bara eitt próf sem við förum í og verður það um miðjan júní... þannig að þið sem eruð að hyggja á ferðalög (sko hingað) getið farið að panta :-)

Ísabella var að flytja á milli deilda á vöggustofunni sinni og er alsæl með þær breytingar.  Er á mun stærri stofu núna og ekki er verra að besta vinkona hennar á vöggustofunni er núna með henni á deild. 
Ísabella og Nathalie eru báðar búnar að liggja með flensuna sem er búin að vera að ganga hérna.  Greyin voru lasnar á meðan við vorum að ganga frá hérna og ég hafði lítinn tíma til að sinna þeim almennilega.  En þær eru nú sem betur fer að hressast.  Nathalie hóstar bara aðeins á nóttunni núna, en ekkert sem heldur fyrir henni vöku.

Knús og kossar frá okkur öllum.
Söknum ykkar meira en orð fá lýst,
Guðný og co.

Guðný Matthíasdóttir
5 athugasemdir

Fyrsta af fjórum búin

19. janúar 2009 klukkan 23:26

Síðan síðast er nú heldur betur margt búið að gerast.

Við hjónin komum prinsessugenginu fyrir hjá vinafólki okkar í Tylstrup og skelltum okkur til Íslands.  Það vissi eiginlega enginn að við værum að koma, en þetta var samt planað með verulega löngum fyrirvara.
Ferðin hófst, árla morguns 7. janúar.  Þá keyrðum við Ísabellu upp í Tylstrup (eftir að vera búin að koma hinum 2 í skóla.
Þær skutluðu okkur svo út á flugvöll og þaðan var haldið til Kaupmannahafnar.  Biðum í 4 tíma á flugvellinum í Köben og fórum svo upp í Flugleiðavélina.
Frekar pirrandi að það fyrsta sem maður heyrir þegar komið er í flugvél á Kastrup (allavegana þegar maður er að fara til Íslands) er að það verði flogið sem leið liggur, YFIR ÁLABORG!!!  Ohhh... ég sem var að koma þaðan og er búin að vera heillengi að koma mér hingað.  Var ekki bara hægt að millilenda???  Smá grín.

Á flugvellinum í Keflavík, biðu Sigurgeir og Katrín eftir okkur, ein af ákaflega fáum sem vissu af ferðum okkar.  Við fórum með þeim heim, svona rétt til að knúsa Rakel og Kristján litla.  Fórum svo upp í Laufrima... að hitta tilvonandi afmælisbarn.  Bönkuðum þar á dyrnar og eftir að Biggi var búinn að opna dyrnar, skella aftur og opna aftur spurði hann hvað við værum að gera þarna.  Kristín var í vinnunni og þegar hún kom heim, tók við annað sjokk :-)  Það var geggjað að vera aftur við 4 að lufsast saman... spila, kjafta og bara vera við 4. 

Tilgangur ferðarinnar var að koma í afmæli kappans... og auðvitað fá aðeins að knúsa fólkið okkar heima.
Við héldum auðvitað áfram að sjokkera fólk og mikið hrikalega var það skemmtilegt:-)

Auðvitað þurftum við að veikjast bæði, en maður lætur það ekkert á sig fá... vona bara að við höfum ekki smitað of marga :-/  Ferðin fór í það að sjá fólk í flugumynd, ég fór í bíó með forsetanum (eða OK, fór í bíó og forsetinn var þar, en hitt hljómar skemmtilega), skiptum jólagjöfum, tjúttuðum í þrítugsafmælinu hans Bigga, fórum í Kolaportið, Kringluna, Smáralind og Korputorg (verður maður ekki að skoða það líka) og borða með júlíhópnum okkar.  Auðvitað gerðum við helling meira en það, en ferðin var samt ALLT OF STUTT og ég er ekki frá því að mig hafi verkjað af heimþrá þegar við vorum á heimleið.  Átti bara verulega erfitt með mig í flugvélinni, langaði bara að fá að vera lengur með öllum heima.  Ohhhh... damn heimþrá.

Auðvitað var geggjað að koma heim og hitta snúllurnar okkar, sem biðu spenntar.  Ísabella er búin að segja oft á dag, síðan við komum heim, mamma og pabbi komin :-)  Algjör snúlla.

En takk fyrir okkur, allir sem við hittum.  Okkur finnst leiðinlegt að hafa ekki getað eytt meiri tíma með hverjum og einum, en svona er þetta bara þegar maður kemur í stuttan tíma.  Við komum aftur um páskana... og svo minni ég á að Iceland Express eru að hefja beint flug frá Álaborg til Keflavíkur, þann 1. júní.

Þegar heim var komið, blast alvara lífsins við.  Prófundirbúningur!!!!  Áttum að vísu bara að fara í eitt próf, en það var líka próf sem skipti öllu máli.  Við vorum auðvitað búin að undirbúa okkur helling, en þurftum auðvitað að gera lokaundirbúning og vera klár á öllum atriðum.
Fórum svo í prófið í morgun og stóðumst með glæsibrag :-D  Grúbbufélagi okkar fékk skammir, því hans hluti af verkefninu var víst ekki eins góður og kennararnir hefðu viljað... en við fengum að vita það, að það væri mjög lítið hægt að setja út á okkar hluta.  Fengum því mjög gott veganesti inn á næstu önn, og erum verulega ánægð með okkur!!!!

Núna eru það flutningar sem eru næstir á dagskrá!!  Fáum lyklana afhenta á fimmtudaginn, þannig að við erum alveg að drukkna í pappakössum núna.  Pökkum eins og enginn sé morgundagurinn og húsið farið að verða verulega tómlegt (nema stofan, þar eru allir kassarnir).  Við ætlum nú að byrja strax á fimmtudaginn, að fara með nokkra kassa uppeftir.  Um að gera að nýta tímann og ferðirnar.
Á laugardaginn koma svo mamma og Óli bróðir, til að hjálpa okkur að flytja.  Hlakka rosalega til að fá þau, enda hitti ég þau svo lítið þegar við vorum heima.

Stelpurnar eru hressar, að mestu leiti.  Hafa fengið snert af þessum pestum sem eru búnar að vera í gangi, en eru að hressast. 
Nathalie fer reyndar ekki í skólann á morgun.  Er búin að vera með hálsbólgu og er voða lítil í sér... þannig að hún fær bara að vera heima.  Það verður fínt að fá að knúsa hana hérna heima og leyfa henni a batna í rólegheitunum.
Hún hlakkar rosalega til að fá ömmu og Óla hingað til okkar, en spáir mikið í því hvar þau eigi að sofa... það sé allt á hvolfi :-)  Hún er vön því, að það er allt tekið í gegn þegar við erum að fá gesti.

Ísabella fór í leikskólann í morgun, í 3. skiptið á þessu ári.  Var í fríi til 5. janúar og fór þá og 6. janúar, en var í fríi á meðan við vorum á Íslandi.  Síðan varð hún lasin og fór því ekkert fyrr en í dag.  Knúsaði allar fóstrur, en þó mest hana Önju sína, og lék sér með krökkunum.  Rosalega gaman hjá henni.
Nýjasta nýtt hjá henni er að segja við öllu sem hún er beðin um að gera (sem hún nennir ekki), "ég get það ekki, ég er lasin".  ég spurði hana hvar hún væri lasin, og svarið kom um hæl, " Í nýja húsinu!!!" algjört skott.

Við eigum að mæta á fund á morgun, í nýja skólanum hennar Andreu Bjarkar.  Hún er farin að hlakka til að byrja þar, en kvíðir auðvitað helling fyrir líka.  Erfitt að fara í nýjan skóla og kynnast nýjum krökkum.  En við erum búin að bjóða henni að klára skólaárið í gamla skólanum hennar... eða jafnvel skipta ekkert um skóla, en hún vill skipta og það strax.  Hún á eflaust eftir að spjara sig fínt, við ætlum allavegana að gera allt til að hjálpa henni til þess.

Jæja, þetta var nú bara svona til að láta rétt aðeins heyra í okkur.
Knús til ykkar allra,
Guðný og co.

Guðný Matthíasdóttir
5 athugasemdir

Gleðilegt ár!!

01. janúar 2009 klukkan 23:02
Gleðilegt ár, öllsömul og takk fyrir þau gömlu.  Ég tók meðvitaða ákvörðun að vera ekki með annál fyrir árið 2008 hérna, enda er það ár eitthvað það leiðinlegasta og erfiðasta sem ég hef upplifað.

Auðvitað var árið ekki alslæmt, það eru nokkrir ljósir punktar. 

Fyrst og fremst erum við hjónin ótrúlega glöð og hamingjusöm með að eiga hvort annað og okkar yndislegu dætur, sem eru svo frábærar og fylla líf okkar af hamingju (nema þegar þær rífast... annað mál :-)
Óvænt heimsókn litlu systur og Bigga hingað til Álaborgar, er klárlega einn af hápunktum ársins... sem og ferðin okkar til Íslands.
Á þessu ári kynntumst við yndislegu fólki, sem við erum ótrúlega hamingjusöm með að hafa kynnst, það er stór ljós punktur ársins.  Líf okkar væri talsvert snauðara, ef við hefðum ekki allt þetta frábæra fólk í kringum okkur.
Við byrjuðum í nýju námi, sem við erum rosalega ánægð með.  manni finnst þvílíkt gaman að mæta í skólann á hverjum degi.
Á árinu komu tengdó í heimsókn (í janúar) og mamma og pabbi (í nóvember), það var æði að hafa þau hérna :-)

Svo byrjum við nýja árið á nettum próflestri og svo er það bara næsta stóra verkefni... flutningar!!!!  Erum búin að pakka slatta niður, maður nýtir sér orkuna þegar hún kemur ... eða á maður að segja nennuna??? 

Áramótin hjá okkur, voru einhver þau alrólegustu í manna minnum.  Við borðuðum og eftir matinn fór Ísabella að leggja sig.  á meðan gengum við frá eftir matinn og spiluðum saman.  Um 22 vaknaði skottið og við fengum okkur ís. 
Kíktum á röltið um hálftólf og það var ENGINN úti, ekki hræða.  Bara eins og maður væri Palli er einn í heiminum.  Rétt fyrir tólf kom fullt af fólki út, flugeldum dritað á loft (og það var alveg slatti sem var sprengdur) og 25 mínútum seinna var allt búið og allir komnir inn!!!
Við fórum þá bara inn, enda skítakuldi og fórum bara að spila.  Nathalie og Ísabella fóru að sofa á milli 3 og hálffjögur (Hey!!! Gamlárskvöld) og Andrea um hálffimm, hehe.
Við hjónin skreiddumst svo rétt eftir það í rúmið.

Annars þá vona ég að nýja árið verði ykkur öllum gott, bara að muna jákvæðnina og að þakka fyrir það sem við höfum.

Knús á ykkur öll.
Guðný


Guðný Matthíasdóttir
4 athugasemdir

Jólakveðjur

27. desember 2008 klukkan 16:50
Gleðileg jól og farsælt komandi ár :-)  Er ekki viðeigandi að reyna að skrifa eitthvað hérna inn, svona í tilefni jólanna?

Jólafríið okkar hófst, þegar við vorum búin að skila verkefninu okkar.  Það gekk nú reyndar ekki eins og skildi, en það var ekki okkar að kenna.  Við vorum 3 í grúbbunni okkar og þar sem svona verkefni er ansi stórt, skiptum við niður verkefnum.
Við Róbert kláruðum okkar hluta, 2 dögum fyrir skil og sáum fram á að nú væri allt að smella saman.  Við vorum með hönnunarhluta verkefnisins, ásamat því að forrita heimasíðuna.  Við áttum eftir að leiðrétta nokkrar örlitlar villur og ætluðum að fá grúbbufélagann með okkur í það.
Fimmtudaginn fyrir skil, byrjuðum við að vinna klukkan 8 um morguninn.  Ætluðum að reyna að finna þessa litlu villu á síðunni, skrifa pínu meira um þetta allt og setja síðuna inn á netið.  Eftir það átti eftir að setja upp skýrsluna, prenta hana út og skila.... eða það héldum við. 
Grúbbufélaginn lét ekki sjá sig fyrr en klukkan 13, nývaknaður.  Eftir örlitla stund, komumst við að því að hann var ekki byrjaður að skrifa sinn hluta verkefnisins!!!  Við vorum búin að ræða þann hluta mjög mikið, og vissum alveg hvernig þetta ætti að líta út.  Hann ætlaði að sjá um að setja þetta í samhangandi texta og þegar við spurðum hvernig gengur... var svarið alltaf að það gengi mjög vel. 
Eeeennn, við komumst semsagt að því, að hann var ekki byrjaður.  Þá var setið til 11 næsta morgun og svo var verkefninu skilað!!!  Ekki vorum við nú samt sátt við verkefnið, en erum búin að tala við kennarann okkar og förum á fund upp í skóla, strax eftir áramót.  Við þurfum að finna út, hvernig áframhaldandi skólavinna verður fyrir okkur, því ekki getum við unnið áfram í þessari grúbbu.

En jæja, eftir að hafa lært í 27,28 tíma var kominn tími á að leggja sig:-)  Við komum hérna heim og sváfum allan daginn.  Andrea náði í systur sína í leikskólann og eldaði kvöldmat.  Hún er ekkert lítið dugleg sko.  Eftir þennan lúr, gátum við nú aldeilis farið að gera jól hjá okkur.  Við kláruðum að skreyta, tókum til og gerðum allt þetta sem maður gerir fyrir jól :-)

Jólin gengu svona samkvæmt bókinni.
Við vorum með grjónagraut í hádeginu á aðfangadag.  Það er hefð sem við ákváðum að starta á síðasta ári og eru stelpurnar mjög ánægðar með hana.  Það er líka fínt, þá borða þær allavegana eina góða máltíð yfir daginn, því oft er matarlistin upp á marga fiska um kvöldið.
Ísabella fékk möndluna að þessu sinni og skildi ekkert í því hvað þessi læti væru.  Hún tók svo bara möndluna og borðaði hana :-D  Hún fékk svo súkkulaði í möndlugjöf.
Dagurinn leið svo við matargerð og afslöppun.  Jólabaðið tekið og farið í sparifötin.
Klukkan 18:30 settumst við og borðuðum rækjukokteil og síðan var hamborgarhryggur í aðalrétt.  Ég var nú bara nokkuð ánægð með matseldina mína, enda er þetta í fyrsta skipti sem ég elda jólamatinn ALVEG EIN.  Í fyrra var Helgi frændi hérna með okkur og hann sá um sósuna og annað slíkt.
Reyndar þá náði ég ekki að brúna kartöflurnar, sykurinn brann áður en kartöflurnar komust á pönnuna... en það var allt í lagi :-)  Við hentum bara sykrinum og gerðum kryddkartöflur og allir sáttir.  Svo ætluðum við að hafa maíz með hryggnum, og eins oft eins og ég hef gert rosalega góðan maíz, hitaðan í potti... klikkaði það núna.  Nathalie kom inn í eldhús og spurði hvort ég væri að poppa, HAHAHA!!!  En þrátt fyrir óbrúnaðar kartöflur og brenndan maíz (sem fór því ekkert á borðið) heppnaðist maturinn alveg hrikalega vel :-)

Eftir tiltekt var svo farið í mál málanna (að mati systra allavegana), pakkaopnun.
Það er of langt mál að telja upp hvað hver og ein fékk og frá hverjum, en hérn kemur léttur listi: 
Andrea: Prjónakjól, 2 leggings, 1 sokkabuxur, nokkrar peysur, pils, 3 bækur, hanska, 2 DVD-myndir, ABBA-singstar, eyrnalokka, nammi, handklæði, hálsmen, glerlistaverk, boli, 2 buxur, náttbuxur, naglasnyrtisett, make-up dót, buddu, nærföt, sokka og legghlífar.
Nathalie: Prjónakjól, 3 buxur, helling af peysum, nokkrar leggings, náttbuxur, nammi, 3 bækur, 3 DVD-myndir, bangsa, tölvuleik, handklæði, spöng, naglasnyrtisett og Little Petshop-dót
Ísabella: Prjónakjól, náttföt, kjól, nokkrar buxur, nokkrar peysur, dukkurúm, dúkkuskiptiborð, barbie-dúkku, hello-kitty-dúkku, handklæði, púsluspil, púslubók, Little People-hús, 3 DVD-myndir, spil, nammi, sokka, sokkabuxur, glerlistaverk og Little Petshop-dót.
Við hjónin: Slökkvitæki, rúmföt, Georg Jensen óróa, hálsmen, tölvumús, tölvuleik, Ladda-diskinn, Villa Vill. diskinn, 2 spil, glerlistaverk, þrykkiverk, bolla, mynd, kertastjaka, nammi, handklæði, Laufeyju lyklakippu, poppsalt, smjörkúpu með svíni á, náttbuxur, pening og ísfólksbók. 

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu, en við þökkum innilega fyrir allar gjafirnar sem við fengum.  Vorum svo rosalega ánægð að sjá, hve nytsamlegar og góðar gjafirnar voru.  Nathalie greyið var orðin hálffatalaus, en það er sko ekki vandamálið núna.  Skvísan á erfitt með að velja í hvað hún á að fara :-)

Eftir pakkaopnun, kíktum við í kaffi til vinafólks okkar og svo heim aftur.  Opnuðum jólakortin okkar og þökkum innilega fyrir allar fallegu kveðjurnar, sem við fengum þar. 
Við vorum að horfa á Villa Vill. tónleikana á meðan við opnuðum kortin og ég átti verulega erfitt með að halda aftur af tárunum.  Það voru svo ofboðslega flottar kveðjur sem við fengum og allir að peppa mann upp.  Á því augnabliki fann maður, hve yndislega vini og ættingja við eigum :-)  Takk fyrir okkur.

Jóladagur fór í kökuboð, hjá vinafólki okkar hérna í götunni.  Eftir að við vorum búin að sitja þar og borða á okkur gat, brunuðum við upp í Tylstrup.  Þar borðuðum við saman hangikjöt með öllu og það var alveg meiriháttar.  Vorum þar til 3 um nóttina, og fórum svo heim með 2 þreyttar stelpur, en sú þriðja varð eftir.

Á annan í jólum, fórum við að ná í Nathalie og tókum dóttur vinafólks okkar, með okkur tilbaka.  kvöldið fór svo í át og afslöppun (en ekki hvað??).

Ég er reyndar búin að ná mér í einhverja pest, er með hálsbólgu, hitavellu og beinverki... en það hlýtur að jafna sig á næstu dögum.  Vona allavegana að það verði fljótlega, því ég ætla að byrja að pakka á fullu, strax eftir áramót!!!

Vildi bara senda ykkur smá jólakveðjur og þakka öllum fyrir okkur. 
Jólaknús og kossar,
Guðný jólaálfur
Guðný Matthíasdóttir
5 athugasemdir

Örstutt

14. desember 2008 klukkan 23:16
Þar sem við erum á fullu að gera lokaverkefnið núna, er enginn tími til að blogga.

Hins vegar eru rosalega margir búnir að hafa samband og biðja um heimilisfangið okkar, það er:

Skallerupvej 305
9220 Aalborg Øst
Danmark

Svona ef einhverjum langar að senda okkur jólakort... eða pakka, híhí!

Og svo reikningsnúmerið okkar, það er....
Ha, ha, smá grín... færi aldrei að setja reikningsnúmerið mitt á opinn vef. 

Knús á ykkur öll, farið vel með hvort annað í jólastressinu.

Guðný og co.
Guðný Matthíasdóttir
Engin athugasemd

Sögustund

05. desember 2008 klukkan 01:30
Verð greinilega að reyna að blogga oftar, svo færslurar verði ekki alltaf svona langar:-)  Það kannski skiptir engu máli, ég er með svo mikla munnræpu (heitir það líka munnræpa þegar við erum að tala um pikk á lyklaborð????), en allavegana þá ætla ég að koma með nýjustu fréttir af okkur.
Mamma og pabbi komu í heimsókn og voru hjá okkur í 10 daga.  Það var alveg æðislegt að fá þau í heimsókn og þegar foreldrar mínir eru annars vegar, þá fara nú hlutirnir að gerast... úff, púff!!

Þegar þau komu, þá áttum við eitt stykki klesstan bíl, pabba fannst nú alveg ómögulegt að við borguðum morðfjár fyrir að láta einhvern mann gera við bílinn (fengum tilboð í viðgerð, upp á 6000,- dkr og reiknið þið nú.. miðað við síðasta gengi).  Það var semsagt haft samband við bílapartasölurnar hérna allt í kring, og viti menn, stuðarinn og framljósið sem vantaði, fannst á bílapartasölu hérna rétt hjá okkur.

Við fórum á stúfana (hvernig gerir maður það annars), keyrðum á staðinn og keyptum varahlutina.  Pabbi tjaslaði bílum saman, og kostaði þetta ekki nema 1600,- dkr... smá munur sko:-)
Takk æðislega fyrir það, elsku pabbi minn.
Núna eigum við eina bílinn á Norður-Jótlandi, sem er með rauðan varalit, stuðarinn er nefnilega eldrauður, en bíllinn dökkgrænn að öðru leiti.

Mamma sat og saumaði upp allt það sem hún fann á heimilinu og var annað hvort hálfklárað, eða þarfnaðist viðgerðar:-)
Hún kláraði jólasokk sem ég var löngu byrjuð á fyrir Ísabellu, en hef ekki haft tíma til að klára.  Prjónaði vettlinga og húfur fyrir heila herdeild, festi tölur á, pakkaði inn og gerði pakkadagatalið klárt.  Ótrúlegt að fá þau í heimsókn, þau eru svo drífandi.

Ekki nóg með það að pabbi hafi komið bílnum okkar í lag, heldur gerði hann gott betur en það.  Forsagan er sú, að við keyptum varahlutina í bílinn, í litlum bæ norðan við Álaborg, sem heitir Vestbjerg.  Kunningi okkar býr í þessum bæ, í nýju 4 herbergja raðhúsi.  Við vorum búin að frétta af því að það væru líka 5 herbergja hús þarna og vorum byrjuð að láta okkur dreyma.  Sáum svo ekki fram á að ná að borga trygginguna af húsinu, þannig að þetta var sett á hold í bili.
Við ákváðum nú samt að sýna mömmu og pabba þessi hús, svona af því við vorum ekki alveg búin að gefa þetta upp á bátinn. 
Hverfið sem við búum í, hefur farið langt niður á við, þetta eina og hálfa ár sem við höfum búið hérna.  Leigan hefur hækkað talsvert og hverfið verður verra og verra, huggulegt ekki satt.  t.d. þá voru settar upp 20 öryggismyndavélar hérna í haust.  Glæsilegt að ala upp börn í hverfi, þar sem þörf er á 20 öryggismyndavélum!!!
En aftur í söguna, þegar mamma og pabbi sáu hverfið, urðu þau alveg heilluð og vildu endilega að við drifum í að kíkja á þetta.
Til að gera langa sögu stutta (af því hún er orðin svo löng, haha!!), þá fórum við og skoðuðum, pöntuðum og skrifuðum undir!!!  Og, vá hvað þetta gekk hratt... þegar maður var með einhvern með sér sem veit meira en maður sjálfur (lesist pabbi og mamma).  Við erum semsagt að flytja, 1. febrúar!!!!
Þar sem ég er með strax-veikina, á frekar háu stigi, varð ég að byrja að pakka niður.  Bara að byrja að gera eitthvað.  Er búin að pakka í einhverja 20 kassa... og það sér ekki högg á vatni.  Vá, hvað við erum dugleg að sanka að okkur drasli.  Er búin að vera að fara í gegnum nokkra skápa og skúffur og hendi, eins og enginn sé morgundagurinn:-)  En það er kannski þörf á þessu.

Allavegana nýja húsið okkar er í bæ sem heitir Vestbjerg.  Það er á 2 hæðum, 5 herbergja og er alveg splunkunýtt.  Leigan er aðeins lægri, en við erum að borga núna... sem er alltaf gaman.  Húsið er 116 fm, en efri hæðin er talin sem hálf hæð, því hún er að hluta til undir súð.  Við erum með risastóra útigeymslu og háaloft.  Hiti í gólfum inni á baðherbergi og í forstofunni.  Skápar í öllum herbergjum, lítill garður sem fylgir og frábærir nágrannar, allavegana þessi sem við þekkjum:-)
Það er stór leikvöllur rétt vi húsið, Grunnskóli nokkur hundruð metra frá okkur (Andrea ætlar að skipta um skóla), stutt í verslun og annað þ.h.
Það búa um 2300 manns í bænum, sem er um 9 km. frá Álaborg og samkvæmt lauslegri könnun erum við fljótari að fara niður í miðbæ með strætó þaðan, en héðan sem við búum núna.
Það er hægt að sjá myndir af slotinu hérna.

En nóg um það... þó að ég hlakka hrikalega til að flytja, þá er alveg annað í gangi, haha!!
Við erum í lokaverkefni annarinnar núna.  Stórt verkefni, sem virðist ætla að teygjast endalaust á, úff!  En það gengur nú samt alveg ágætlega, vonum að það haldi bara áfram þannig.  Við eigum að skila 19. desember og erum þá komin í jólafrí.  Förum svo í einhver próf í janúar, en höfum ekki alveg fengið dagsetningar á það.

Svo á að taka helgina með trompi!!!  Ætlum að reyna að vera dugleg að læra á morgun, og taka svo til ag klára að skreyta.  Á laugardaginn erum við að fara á jólaball á vöggustofunni hennar Ísabellu, það er frá 10-12 um morguninn... frekar undarlegur tími, finnst okkur íslendingunum.  En það er svosem ágætt að eiga svo restina af deginum, því um kvöldið erum við að fá matargesti.  Ég á afmæli á þriðjudaginn, og verð... ja, bara 25 eða eitthvað þannig.  Þetta er allavegana eitthvað svipaðar tölur ;-) Ætlum að borða (vonandi) góðan mat, svona ef eldamennskan heppnast hjá mér, spila og tjútta eitthvað frameftir.  Þetta verður væntanlega mikið fjör, á ekki von á öðru.  Það er það venjulega þegar við komum saman.

Stelpurnar eru allar hressar.
Nathalie er að fara á jólahlaðborð með bekknum sínum í næstu viku.  Pabbi eins bekkjarbróður hennar á veitingastað og hann ætlar að bjóða þeim öllum að koma.  Bara frábært.  Hún er ósátt við það að amma og afi séu farin, en sér fram á að hitta þau slatta á næsta ári, svona ef allt gengur eftir sem búið er að plana.
Andrea er á fullu í skólanum, en getur samt varla beðið eftir að skipta um skóla og prófa eitthvað nýtt... hvaðan ætli barnið hafi þessa nýjungagirni???
Ísabella er búin að vera með einhverja kvefvellu, en er öll að koma til.  Henni fannst rosalega sniðugt að hafa ömmu og afa í heimsókn og nýtti öll tækifæri til að snúa þeim í kringum sig:-)  Já, hún var sko ekki lengi að læra inn á ömmu og afa.

Jæja, núna er ég komin með skrifkrampa (er búin að vera að vinna í tölvunni í allan dag) og þið ábyggilega búin að gefast upp, haha.

Knús á ykkur öll, og takk fyriri kvittin:-)
Guðný og co.

p.s. gleymdi að taka það fram, að ef einhver er afskaplega viljugur í flutningahjálp, þá bjóðum við upp á pizzu og bjór í staðinn... bara svona um mánaðamótin janúar-febrúar.
Guðný Matthíasdóttir
16 athugasemdir

Pulling an all nighter

25. nóvember 2008 klukkan 00:38
Sko mig, bara hrokkin í gang aftur:-)  Get eiginlega ekkert lagt það á ykkur að fara í gegnum svona rosalega færslu aftur... þannig að ég ákvað bara að skella inn bloggi, þar sem ég nenni ekki að fara að sofa (ekkert nýtt þar).
Hefjum frásögn þar sem frá var horfið:-)

Ég fór í 25 ára afmæli til Bylgju skvísu fyrir 10 dögum.  Þetta var skvísupartý, fámennt, en alveg svakalega góðmennt.  Við gerðum hinar ýmsu drykkjatilraunir, kokteilarnir runnu ljúft niður (jafnvel niður á gólf) og rétt eftir miðnætti skelltum við okkur í bæinn.  Ég fór meira að segja sjálfviljug og ótilneydd í bæinn, pælið í því.  Var í bænum til að verða 5 og það var ROSALEGA gaman. 
Það var drukkið, dansað, hlegið, faðmað, kjaftað, hlegið meira, dansað meira og drukkið smá í viðbót... þangað til maður var alveg til í að fara bara heim.
Geggjað skemmtilegt kvöld, takk fyrir mig, uppáhaldsnágrannarnir mínir:-)

Sunnudagurinn fór í leti og lærdóm, enda annað ekki hægt... styttist í skil á Portfolio.  Vikan flaug svo bara framhjá, stutt skólavika, bara miðvikudagur og fimmtudagur, en OMG!  Það var eitthvað svo mikið að gera að redda öllu, gera og græja að það var rosalegt.
Það orsakaði það að á fimmtudagskvöldi, var verkefnið ekki búið.  Ég var ekki byrjuð á skýrslunni og sá fram á að sitja frameftir að læra.  Það væri svo sem allt í lagi... ef ég hefði ekki verið að leka niður úr þreytu.
Hey!  Það þýddi ekkert að grenja yfir því, heldur settist ég fyrir framan tölvuna (þegar Ísabellu þóknaðist að sofna) og ætlaði að klára smotteríið sem var eftir á síðunni minni, og fá svo einhverja góðhjartaða til að skoða síðuna og dæma hana.
Ég kláraði síðuna á tæpum hálftíma og setti hana inn.  Eitthvað klikkaði í forrituninni hjá mér, því þegar síðan var komin inn á serverinn, duttu allir linkarnir mínir út.
Nú voru góð ráð dýr.  Klukkan um miðnætti þegar þetta uppgötvast, skýrslan ekki til, nema sem falleg hugsun (og von um að hún myndi birtast í tölvunni hjá mér, mjög skyndilega) og síðan sem ég átti að skila biluð og ég hafði ekki hugmynd um hvað væri að.  Ég byrjaði að fara yfir forritið, Róbert fór yfir það og ekkert fannst.  2 tímum seinna, slysaðist kunningi okkar inn á MSN-ið, og þar sem hann er búinn að læra þetta sama og við erum að læra, var hann fenginn með í geðveikina.
Róbert fann svo villuna... þegar klukkan var langt gengin í 4 (og munið, ennþá engin skýrsla!!!) og é´g tók við að laga villuna.  Það tók smá tíma að fatta hvernig og svo að laga þetta, þannig að klukkan var um hálffimm, þegar skýrsluskrifin hófust.
Ég byrjaði bara að skrifa, skrifaði eins og vindurinn og 11 síður urðu til... fyrir klukkan 6... geri aðrir betur. ´
Um hálfsjö var Nathalie vakin, og aumingja barnið var í sjokki að sjá foreldrana vakandi og bara nokkuð hressa, á þessum tíma sólarhringsins.
Andrea var svo vakin 7:15 og svo ísabella um 8.  Skutluðumst upp í skóla með skýrslurnar og vorum komin heim um 9.  Þá var sko farið beint að sofa.
En jidúddamía, ég las ekki skýrsluna yfir (aftur) fyrr en áðan og ég man ekki hvað ég skrifaði, ekki neitt af því.  Það er eins og einhver annar hafi gert þetta, og ég að fara að kynna verkefnið á morgun:-/  Wish me luck!!

Jæja, svo þetta sé ekki nær eingöngu skólaröfl, þá get ég sagt ykkur frá því, að við fórum í leikhús á laugardaginn.  Við hjónin og örverpið sem áhorfendur, en hinar 2 sem leikkonur:-)
Jebb, lokaleikritið á leiklistarnámskeiðinu var á laugardaginn og stóðu þær sig alveg rosalega vel.  Það er sko ekkert auðvelt að standa fyrir framan fullan sal af fólki og þurfa líka að muna hvað þær eiga að segja, en þær stóðu sig sko þrusuvel.

Síðan var brunað heim, húsið tekið í gegn og jólaskrautið tekið niður af háaloftinu.  Við semsagt sögðum við stelpurnar að við hefðum svo mikið að gera allan desember, þannig að við ætluðum að byrja að skreyta snemma. 
Fórum svo til Valborgar og Stulla, að spila um kvöldið, með nett samviskubit yfir því að hafa verið að ljúga að börnunum.
Sannleikurinn var nefnilega sá, að mamma og pabbi komu í heimsókn í gærkvöldi:-D  Stelpurnar vissu ekkert og svipurinn á þeim var alveg óborganlegur.
En já, við erum semsagt með gesti og það er bara æðislegt.  Alltaf gott að hafa mömmu og pabba hjá sér.  Það slær aðeins á heimþránna og almenna vanlíðan yfir því að vera Palli er einn í heiminum (líður oft þannig).  ÞAu ætla líka að stoppa í 11 daga, sem er algjört æði.

Jæja, ætti ég kannski að fara að koma mér upp í rúm, þannig að maður verði með einhverri rænu í fyrramálið??
Vil samt óska Rakeli, Sigurgeiri og Katrínu Theódóru, innilega til hamingju með litla prinsinn þeirra.  Ég hlakka til að fá myndir, hint, hint:-)

Knús á ykkur elskurnar, og takk fyrir að vera svona dugleg að kvitta, það er algjört æði að lesa kommentin ykkar.

Kveðjur úr jólabænum á Skallerupvej,
Guðný
Guðný Matthíasdóttir
5 athugasemdir

Langa, langa, langa færslan

12. nóvember 2008 klukkan 23:56
Veit ekki hve oft ég er búin að ætla að blogga, byrja að blogga, hugsa um að blogga... og já allt þetta, án árangurs.  Hef bara verið eitthvað stífluð í þessari stöð heilans:-)  Vonum bara ða þetta blogg nái alla leið, svona ef einhverjir nenna ennþá að kíkja hérna inn og lesa.  Er alveg viss um að allir eru búnir að gefast upp á bloggleysinu, haha, en það verður þá bara að hafa það... þið megið samt alveg láta mig vita ef þið lesið þetta, nenni ekki að skrifa fyrir sjálfa mig.

Ok, og hvað er svo að frétta???

Fórum í sumarbústað í 2 nætur í haustfríinu.  Vorum svo hrikalega heppin að vinafólk okkar, Valborg og Stulli, buðu okkur að koma og það er sko langt síðan ég skemmti mér svona vel.  Við spiluðum og spiluðum og spiluðum.  Það var borðaður hrikalega góður matur, drukkinn smá bjór (auðvitað í hófi), fórum í sund og slöppuðum af.  Æðisleg ferð, Takk fyrir okkur.

Kíktum svo niður á strönd, daginn eftir að við komum heim.  Stelpurnar komu heim með fulla poka af skeljum og steinum... sem við vitum ekki alveg hvað við eigum að gera við... tillögur vel þegnar.

Síðasta frídaginn okkar í haustfríinu, fórum við í Lególand.  Það var svo svakalega troðið þar, að við gáfumst upp um miðjan dag.  Stelpurnar meira að segja nenntu ekki meiru og vildu bara fara.  Við vildum nú nýta ferðina, fyrst við vorum komin af stað á annað borð, og skelltum okkur til Ribe.  Ribe er elsti bærinn í Danmörku og það er rosalega gaman að labba þar um og skoða.  Nathalie átti brandara dagsins, þegar hun bauðst til að stela göngugrind fyrir mig, þegar ég sagðist vera að verða þreytt í löppunum:-)  Stendur ekki á svörunum á þeim bænum.
Og fyrst við vorum komin alla þessa leið, þá fórum við líka til Esbjerg:-)  Fengum okkur að borða þar, rúntuðum aðeins um og fórum svo heim á leið.  Höfðum þó vit á því að kaupa bensín áður en við lögðum af stað heim, enda bensínið krónu ódýrara þar en í Álaborg!!!  Pælið í því, það eru bara 23,- íslenskar krónur... HEHE!!

Næstu helgi á eftir fórum við hjónin og Ísabella, til Horsens.  Fórum á fund sem sendiherra Íslands var með þar.  Fundurinn var mjög fínn og það var ferlega notalegt að sjá samstöðuna hjá fólki.  Við eyddum öllum deginum í Horsens, þ.e. inni í salnum þar sem fundurinn var og var mikið spjallað.  Hittum fólk frá hinum íslendingafélögunum á Jótlandi, sem var bæði skemmtilegt og fræðandi. 

Um síðustu helgi fórum við hjónin á velkomstball, sem karlaklúbbur íslendingafélagsins var með.  Fínasta skemmtun, en við (gamla fólkið) vorum komin heim um tvö-leitið.  Þvílíkir djammarar sko.  Ég var nú eiginlega fegin daginn eftir, því þá gat ég farið að læra og svona... án þess að vera að deyja úr þynnku.

Um síðustu helgi vorum við að skutla vinkonu okkar og dóttur hennar (vinkona hennar Andreu) heim.  Þær búa aðeins fyrir utan Álaborg, þannig að það eru ekkert ljósastaurar alla leiðina.  Á leiðinni til baka, hljóp dádýr fyrir bílinn hjá okkur, og við keyrðum á það.  Dýrið hljóp eitthvert í burtu, en hefur samt örugglega slasast slatta... miðað við það sem við sáum á bílnum hjá okkur.  Við fórum út úr bílnum til að kíkja og men Ohhh men!!  Stuðarinn (sem var brotinn fyrir), var alveg í rúst.  Annað framljósið ónýtt, brettið og húddið beyglað og grillið brotið.  Sem betur fer slapp vatnskassinn og loftpúðarnir sprungu ekki út, því þetta tjón fer bara á okkar reikning.  Ef þetta hefði verið rolla, belja, svín, hundur eða eitthvað annað dýr sem einhver á, hefði viðkomandi þurft að borga... en nei, við erum bara óheppin:-( 
Yndislegu vinir okkar, þekkja fólk á réttum stöðum og á morgun förum við með bílinn okkar heim til gaurs sem gerir við svona bara heima.  Hann nær vonandi að redda stuðara og ljósi á partasölu og berja húddið og brettið til:-)  Gott að eiga góða og trausta vini.

Við erum byrjuð á fullu í jólaundirbúningi.  Jebb, ekki seinna vænna, þar sem það verður bilað að gera í desember.  Erum búin að kaupa flestar jólagjafir... nú eða búa þær til.  Við Valborg, með dyggri aðstoð frá elstu dætrum okkar, erum á fullu á búa til jólakort og gengur það bara vel.  Á von á að vera búin að öllu jólagjafa- og jólakortastússi fyrir mánaðamót ;-)
J-dagurinn var jú á föstudaginn, þannig að núna má maður sko byrja að undirbúa jólin á fullu.  Fyrir þá sem ekki vita, þá er J-dagurinn, dagurinn sem er byrjað að selja jólabjórinn frá Tuborg í verslunum hérna... stór atburður.

Stelpurnar eru alltaf svo hressar.  Erum búin að fara á foreldrafund hjá Nathalie og Ísabellu og förum í skólanum hjá Andreu eftir helgi.
Hjá Ísabellu var allt gott að frétta.  Þær eru rosalega ánægðar með hana... eins og alltaf.  Henni gengur vel að tala, bæði dönskuna og íslenskuna og gerir allt til að gera sig skiljanlega.  Hún er farin að telja upp að 20 á íslensku og 10 á dönsku.  Er alltaf að æfa sig í litunum, en það skiptist á milli daga, hvernig það gengur.  Suma daga eru allir litir gulir og aðra daga eru allir litir grænir:-)  En þetta kemur allt hjá henni, hún er allavegana dugleg að æfa sig.  Þessa dagana þykir henni skemmtilegast að púsla eða láta lesa fyrir sig og er farin að horfa aðeins á sjónvarpið (nýtilkomið).  En það er ekkert hvað sem er sem hún horfir á... neibb, Skoppa og Skrítla, Maggi mörgæs eða Tommi togvagn, skal það vera, stundum sleppur Latibær líka inn:-)  Frekar fyndið.
Nathalie fékk rosalega fína umsögn í skólanum.  Hún er langfremst í öllum fögum í skólanum og það er farið að tala um að hún verði með 3. bekknum í skólanum, í stærðfræði.  Kennararnir töldu að það væri fínt fyrir hana að vera innan um fleiri krakka.  Hún var í dönskuprófi í síðustu viku og fékk 391 stig af 400 mögulegum og tók því prófið í nefið :-D  Var langhæðst í bekknum, sem er fyndið, því hún er eini útlendingurinn þar.
Hún er rosalega dugleg hérna heima, farin að halda herberginu sínu fínu og er farin að hlusta mikið betur á það sem við segjum við hana.  Algjört lúxuslíf.
Andrea pæja er á fullu í skólanum og á leiklistarnámskeiði, sem hún byrjaði á í haust.  Hún er alveg viss um að hún sé búin að finna framtíðaráhugamálið... an það getur jú breyst.  Eins og ég sagði, þá erum við að fara á foreldrafund eftir helgi... en ef ég miða við umsögnina hennar, þá þurfum við ekki að hafa miklar áhyggjur af henni.  Hún er dugleg í skólanum og svakalega dugleg hérna heima líka.  Auðvitað komin nett gelgja í hana, en ekkert alvarlegt.  Um daginn vorum við að tala saman og talið barst að kreppunni heima.  Þá heyrist í henni, mamma, ef ástandið er slæmt hjá okkur... þá get ég alveg frestað því um ár að fermast:-)  Algjör dúlla sko.

Við erum bara góð, erum á fullu í skólanum og það er alltaf jafn gaman.  Vorum með Legó-dag um daginn og það var frekar spes að horfa á full akennslustofu af fullorðnu fólki að byggja úr legókubbum:-)  Áttum semsagt að byggja bíla og forrita þá til að keyra, á fyrirfram ákveðin hátt. 
Fyrir utan það, þá eru verkefni og aftur verkefni hjá okkur.  Eigum að skila stóru verkefni 21. nóvember.  Öðru 25. nóv og förum svo beint í stóra prófverkefnið... já, það er gaman að þessu!!!
Fyrir utan skólann, þá er eitt stk. stelpupartý á döfinni... bara gaman að því:-)  Bylgja vinkona og nágranni á afmæli á laugardaginn og ætlum við að hittast nokkrar skvísur og stelpast.  ætlum að fá okkur kokteila og kannski kíkja á lífið í miðbænum.  Róbert fær ekki að koma með að þessu sinni, en það getur vel verið að hann geri eitthvað sniðugt í staðinn.

Jæja, ætla að stoppa núna, fæ æðiskast á lyklaborðið þegar ég loksins kemst í gang.
Vona að það verði ekki svona langt í næsta blogg... en lofa engu:-)

Knús til Íslands, munið að vera góð við hvort annað og hugsa um það sem við höfum en ekki það sem við höfum ekki efni á.
Rigningakveðjur frá Álaborg,
Guðný og co.




Guðný Matthíasdóttir
10 athugasemdir

Blaðaviðtöl og haustfrí

11. október 2008 klukkan 15:31
Vó, ætlaði að henda inn bloggfærslu... þá er bara búið að breyta öllu kerfinu hérna og maður er heillengi að finna eitthvað út úr þessu.  En well, gat það á endanum (greinilega) og læt þá bara færsluna vaðaþ

Ætla nú ekki að fara að tjá mig neitt um ástandið heima á Íslandi... það er slæmt, eins og allir vita og engin ástæða að ræða það neitt frekar hérna.  Enda verð ég að viðurkenna að ég veit ekki nægilega mikið um þetta, hvernig, hversvegna, hverjir o.s.frv. til að geta eitthvað tjáð mig.

Byrjaði vikuna á veikindum, ferlega gaman að því... eða þannig.  Ísabella varð líka lasin, þannig að það var ástand á okkur mæðgum.  Á þriðjudaginn var ég að hressast og skellti mér í sturtu af því tilefni.-)
Þegar ég var búin í sturtu, hringdi síminn minn.  Í símanum var fréttamaður frá lókalblaðinu hérna, Nordjyske stiftstidende og honum langaði að heyra hvernig við finndum fyrir fjármálaástandinu heima.  Með "við" þá átti hann við námsmenn í útlöndum.  Ég samþykkti að svara nokkrum spurningum og stóð því, á nærfötunum að svara spurningum fréttamanns.  Þegar viðtalinu var að ljúka, spurði hann hvort hann mætti koma yfir og taka eina mynd, til að láta hana fylgja fréttinni.  Jú, jú, hann mátti það alveg og sagðist hann þá ætla að koma innan 15 mínútna. 
Jidúddamía, við fórum á fullt að taka til, ég að klæða mig og henda einhverju meiki í andlitið á mér og Róbert að láta húsið líta svona þokkalega út (minni á að ég var búin að liggja í veikindum og því lítið gert heima).  Maðurinn mætti 15 mínútum seinna, með ljósmyndara og sjónvarpstökuvél!!!  Jebb, spurðu hvort það væri ekki í lagi að taka upp smá frétt á vélina.
Daginn eftir vorum við fjölskyldan (og röddin mín, vá hvað maður hljómar alltaf asnalega) í blaðinu, á netinu, í útvarpinu og sjónvarpinu.
Eins og þetta hafi ekki verið nóg, var beðin svo um að koma í 2 útvarpsviðtöl hjá Danmarks Radio (RÚV Dananna).  Reyndar í gegnum síma, en það gekk alveg ferlega vel.
JEBB, maður er sko orðinn frægur í útlöndum.

Fór svo í skólann á miðvikudaginn, að undirbúa kynningu á verkefninu sem við skiluðum 1.okt.  Vorum svo með fyrirlestur, kynningu á verkefninu í gær og fengum þvílíkt góða dóma.  Fáum ekki einkunn, bara umsagnir og þær fara svo í möppuna okkar.  Þannig að góðar umsagnir hjálpa okkur að fá góða vinnu, að námi loknu.
Kennarinn okkar sagði að við hefðum farið langt yfir þær væntingar sem gerðar eru, svona í upphafi náms og það er sko ekki leiðinlegt að fara inn í helgina og haustfríið með þetta á bakinu.

Við hjónin kíktum svo á októberfest í skólanum í gærkvöldi, bara svona létt.  Vorum komin heim rétt eftir miðnætti, þannig að þetta var nú ekki mikið skrall.  Ég er svo að fara með Áladívunum út að borða í kvöld.  Hugsa að ég fari svo bara beint heim, enda heldur maður fast um budduna þessa dagana.

Erum svo að fara upp í sumarbústað til Valborgar og Stulla á morgun, ætlum að spila saman og FARA Í SUND!!! Hlakka mest til þess:-)

Læt þetta gott heita í bili.
Knús á alla, Guðný og co. Í HAUSTFRÍI

p.s. ef þið viljið sjá blaðagreinina, þá er linkur á hana hérna.
Guðný Matthíasdóttir
3 athugasemdir